Fljúgum hærra
Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um tónlist og merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum og í seríu 3 segir hún frá hinum ýmsu tónlistarstefnum og merkum atburðum í tónlistarsögunni.
Safnakerlan Linda dregur hins vegar fram sögur af spennandi konum í ljósmyndun.
Þið finnið okkur líka á Facebook og getið hlustað á þættina okkar á Spotify, Apple Podcast og fjölmörgum öðrum hlaðvarpsveitum
Fljúgum hærra
31) George Michael
Use Left/Right to seek, Home/End to jump to start or end. Hold shift to jump forward or backward.
Hvað svo sem sumum okkar, og þar á meðal mér, finnst um Wham! þá getur enginn sagt annað en að George Michael hafi verið frábær söngvari og líka lagahöfundur og oft vanmetinn sem slíkur.
Hann gaf ekki út margar sólóplötur á ferlinum en þar er að finna fjöldan allan af ódauðlegum popp lögum. Hann átti við allskonar vandamál að stríða seinni hluta æfinnar og lést langt um aldur fram 2016 aðeins 53 ára gamall.