Fljúgum hærra
Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um tónlist og merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum og í seríu 3 segir hún frá hinum ýmsu tónlistarstefnum og merkum atburðum í tónlistarsögunni.
Safnakerlan Linda dregur hins vegar fram sögur af spennandi konum í ljósmyndun.
Þið finnið okkur líka á Facebook og getið hlustað á þættina okkar á Spotify, Apple Podcast og fjölmörgum öðrum hlaðvarpsveitum
Fljúgum hærra
Latest Episodes
32) Soundgarden
Late 80´s var Seattle bara útnári þar sem að ekkert var að gerast og þangað sem enginn fór sem ekki átti erindi en í bílskúrum og kjöllurum víðsvegar um borgina voru hljómsveitir að spila sem áttu svo eftir að leggja heiminn að fótum sér.
31) George Michael
Hvað svo sem sumum okkar, og þar á meðal mér, finnst um Wham! þá getur enginn sagt annað en að George Michael hafi verið frábær söngvari og líka lagahöfundur og oft vanmetinn sem slíkur.Hann gaf ekki út margar sólóplötur á ferlinum en þa...
30) Guns ´n´ Roses - The Most Dangerous Band in the World
Margir segja að Guns ´n´ Roses séu síðasta risa rokk bandið sem komið hefur fram á sjónarsviðið. Þeir spiluðu sína blöndu af pönki, blues og classic rock og komu með, eins og einhver sagði "danger, attitude and legitimacy" þegar hair metalið ha...
29) Lou Reed - Með og án Velvet Underground
Einhver blaðamaðurinn sagði um Lou Reed: Það eru til allskonar áhrifavaldar. Sumir hafa áhrif á ákveðna bylgju tónlistar meðan aðrir hafa áhrif á ákveðna kynslóð. Áhrif Lou Reed náðu langt út fyrir eina tónlistarbylgju eða eina kynslóð heldur n...